10 Vinsælustu Sumarvörurnar : Sól, leikur og ævintýri í íslensku sumarveðri!
1. 🌊 ECO Sand- og Sullstöð Með Myllu
Skoða hér →
Fullkomin í vatnsleiki út í garði, í heitapottinn eða í sandkassann! Þetta vistvæna leikfang heldur litlum höndum uppteknum – hvort sem það er sól og blíða eða rigning sem býður upp á drullumall.

2. 🌈 Handklæði Með Hettu
Skoða hér →
Mjúkt, hlýtt og sætt – þetta handklæði úr lífrænni bómull er fullkomið eftir bað eða sund. Það kemur með fallegu seglbátamynstri, sætum eyrum á hettunni og smellum undir höndum. Handklæðið er fljótþornandi, GOTS-vottað og hentugt fyrir viðkvæma húð. Fáanlegt í bleiku og marglituðu mynstri.

3. 🍽️ Eldhússett
Skoða hér →
Fyrir litla matreiðslumeistara sem elska að búa til veislur í sandkassanum! Þetta leikfang er tilvalið í ímyndaðar lautarferðir og veitingastaði úti í garði – leikur sem þjálfar bæði hugmyndaflug og ímyndunarafl.

4. 👟 Sundskór
Skoða hér →
Þessir þægilegu sundskór eru úr sveigjanlegu silikoni, léttir og endingargóðir. Eru með smellum sem gerir það auðvelt að festa þá. Frábærir fyrir sumarið, hvort sem það er í sundlaugina eða útileguna. Koma í stærðum 24-29 og í bæði bleikum og bláum lit.

5. 🚛 Steypubíll
Skoða hér →
Steypubíllinn er tilbúinn í stóru verkefnin, hvort sem það er í moldinni við sumarbústaðinn, í sandkassanum heima eða á tjaldsvæðinu. Hann hentar vel í útileik og hjálpar börnum að þjálfa samhæfingu. Fullkominn félagi fyrir sumarið!
6. 💌 Kjóll með vasa - Póstkort
Skoða hér →
Ljós og þægilegur kjóll með fallegu mynstri sem fær alla til að brosa. Fullkominn í göngutúra, ísferð, sumarpartý og auðvitað líka fyrir leik í garðinum.
7. 🏖️ Sandsett „Elfiki og vinir“
Skoða hér →
Þó við eigum ekki gullnar strendur eins og suðrænu löndin, eigum við frábærar svartar strendur, mold og sandkassa – þetta sett gerir hverja moldarböku að meistaraverki!
8. 🩳 Stuttbuxur - Denim Rrendur
Skoða hér →
Stuttbuxur sem eru sumarklassík! Léttar og þægilegar og passa fullkomlega með hvaða bol sem er. Klárar fyrir öll ævintýrin sem sumarið hefur upp á að bjóða!
9. ⛵ Baðbátur
Skoða hér →
Fullkominn bátur fyrir baðið og sundlaugina! Hann flýtur á vatni, hefur fimm mismunandi göt fyrir kubba og hjól svo hægt er að draga hann á eftir sér. Skemmtilegt og örvandi leikfang fyrir leik bæði inni og úti.
10. 🧶 Prjónuð peysa
Skoða hér →
Þessi peysa er bæði hlý og stílhrein á svölum sumardögum. Röndótta mynstrið gerir hana bæði litrík og sumarleg. Kemur með bleikum og bláum röndum.
Hvort sem sumarið hjá ykkur verður í garðinum, á ferðalagi eða bara heima með kakóbolla í rigningunni þá gera þessar vörur það enn skemmtilegra 🌞
✨ Skoðaðu allt úrvalið og finndu sumaruppáhaldið þitt á LariLei.is!