Til að búa til tening þarf barnið að tengja saman 6 marglitaðar hliðar en einnig er hægt að nota hliðarnar til þess að byggja allt það sem hugmyndarflugið bíður uppá.
Að auki hefur hver hlið göt til þess að setja kubba með mismunandi lögun í gegnum. En 18 kubbar fylgja einnig með.
Slétt og kúpt yfirborð auðveldar litlum höndum að meðhöndla hlutina og leika með teninginn.
Mælt með fyrir börn 1+ ára
Fjöldi hluta í setti : 24 stk
Stærð: 13,5L x 13,5B x 13,5H